Pálmi Jónsson, sem fyrr í vetur tók við stöðu rekstrarstjóra Wedo, móðurfélags Heimkaupa, hefur tekið við sem forstjóri Wedo. Hjalti Baldursson, sem hefur undanfarið gegnt stöðu forstjóra til bráðabirgða, lætur af störfum.

Anna Jóna Aðalsteinsdóttir
Anna Jóna Aðalsteinsdóttir

Þá hefur Anna Jóna Aðalsteinsdóttir verið ráðin fjármálastjóri félagsins. Hún starfaði áður sem fjármálastjóri Hagkaups.

Pálmi var framkvæmdastjóri Emmessíss frá árinu 2019 þar til í maí í fyrra þegar hann lét af störfum. Hann var áður annar eigandi Blámar sem HB Grandi, nú Brim, keypti fyrir þremur árum.

Í tilkynningunni segir að Hjalti og Ólafur Gauti Guðmundsson tæknistjóri stýrðu innviðauppbyggingu félagsins síðastliðin misseri. Hjalti lætur nú af störfum en Ólafur Gauti mun starfa fram á sumar.

Gísli Jón Magnússon, stjórnarformaður Wedo:

„Það er mikill fengur í þeim Pálma og Önnu Jónu fyrir Wedo. Þau búa bæði yfir yfirgripsmikilli reynslu sem mun nýtast á komandi misserum, þegar næstu skref í þróun félagsins verða tekin. Félagið hefur staðið í miklu umbreytingaferli varðandi innviði sem Hjalti og Ólafur Gauti hafa stýrt af myndarskap. Um leið og ég vil bjóða þau Pálma og Önnu velkomin vil ég þakka þeim Hjalta, Ólafi Gauta og Valdimar góð störf.”

Pálmi Jónsson, forstjóri Wedo.

„Mér finnst gríðarlega spennandi að taka við keflinu á þeim tímamótum sem Wedo stendur í dag. Ég hlakka til að vinna áfram að vexti og framgangi félagsins með því góða fólk sem þar er.”