Ný stjórn Háskólans í Reykjavík hefur framlengt ráðningarsamning dr. Ragnhildar Helgadóttur rektors til ársins 2026. Hún tók við stöðunni af dr. Ara Kristni Jónssyni árið 2021 sem hafði verið rektor í ellefu ár. Ragnhildur gerði upphaflega samning til eins árs, sem hefur nú verið framlengdur.

Þetta er í fyrsta sinn sem samið er við rektor um að gegna starfinu í tiltekinn tíma – fjögur ár – en möguleiki er á að sami einstaklingur gegni starfinu í tvö tímabil. Þetta er í samræmi við það sem þekkist í öðrum háskólum á Norðurlöndunum.

„Háskólinn í Reykjavík stendur faglega sterkar en nokkru sinni og það gengur allt afskaplega vel. Skólinn hefur á að skipa frábæru starfsfólki og nemendahópurinn hefur aldrei verið stærri eða sterkari, en 300 starfsmenn og 350 stundakennarar vinna nú með ríflega fjögur þúsund nemendum skólans,“ er haft eftir Ragnhildi í tilkynningu.

„Yfirlýst hlutverk HR er að undirbúa samfélagið fyrir framtíðina og það gerum við með því að skapa og miðla þekkingu. Skólinn stendur mjög vel á alþjóðlegum listum yfir gæði háskóla. Í mínum verkahring er sem fyrr að hugsa um hag skólans í heild. Það gerum við til dæmis með því að efla mannauð okkar í námi, rannsóknum og starfi. Þegar vel tekst til nærum við vaxtarsprota sem leiða til nýsköpunar í atvinnulífi. Við vitum um sextíu sprotafyrirtæki með rætur í verkefnum í HR. Það þykir mér harla gott fyrir ungan skóla af hóflegri stærð.“

Ragnhildur var forseti samfélagssviðs HR 2019-2021, deildarforseti lagadeildar 2014-2019 og prófessor við lagadeild frá 2006. Hún hóf kennslu við skólann árið 2002. Ragnhildur var í sex ár formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs og hefur gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum. Hún hefur kennt við háskóla í Montreal, Ottawa, París og Toulouse.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR
Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Ný stjórn HR

Nýja stjórn HR skipa Guðbjörg Edda Eggertsdóttir (formaður), Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Svanhildur Hólm Valsdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech.

Háskólinn í Reykjavík er hlutafélag og eru hluthafar og eignarhluti þeirra eftirfarandi: Menntasjóður Viðskiptaráðs Íslands 64%, Samtök iðnaðarins 24% og Samtök atvinnulífsins 12%. HR er rekinn eins og um sjálfseignarstofnun sé að ræða og ávinningurinn snýst um að efla menntun í landinu. Stjórnin sinnir almennum stjórnarstörfum og ber ábyrgð á stefnumótun, stjórnskipulagi, fjármálum og almennum rekstri.