Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Sigrúnu Brynju Einarsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu til fimm ára frá og með 1. apríl næstkomandi.

Alls bárust sjö umsóknir um embættið sem var auglýst þann 27. desember en umsóknarfrestur rann út þann 23. janúar. Hæfnisnefnd var skipuð til að meta hæfi umsækjenda. Sex umsækjendur voru boðaðir í viðtal og niðurstaðan eftir ráðningarviðtölin var sú að Sigrún Brynja væri hæfust umsækjenda til að taka við starfi ráðuneytisstjóra, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Sigrún Brynja hefur starfað sem skrifstofustjóri á skrifstofu menningar og fjölmiðla hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu frá árinu 2022. Áður hafði hún gegnt embætti skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu frá árinu 2016. Starfaði hún þar á undan sem forstöðumaður nefndarsviðs Alþingis í átta ár.

Sigrún Brynja er með Candjur próf í lögfræði og alþjóðlega IMPA D-vottun í verkefnastjórnun.