Tryggvi Karl Valdimarsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Verifone á Íslandi. Verifone þjónustar fjölda fyrirtækja með greiðslulausnir bæði í verslunum og í netverslunum.

Hann hefur 15 ára reynslu á fjármálamarkaði og hefur leitt teymi bæði á Íslandi og í Evrópu í fyrri störfum sínum. Tryggvi kemur frá Arion banka þar sem hann sinnti vöruþróun fyrir fyrirtæki síðastliðin þrjú ár en þar áður starfaði hann í 13 ár hjá Borgun hf.

„Það er heiður að taka við starfi framkvæmdastjóra Verifone á íslandi. Í fyrri störfum mínum hef ég fengið að kynnast starfsemi félagsins og ég mun nýta þá reynslu til að leiða félagið áfram í komandi verkefnum. Verifone býður uppá framúrskarandi greiðslulausnir og áfram munum við byggja á því góða trausti sem viðskiptavinir hafa sýnt Verifone í gegnum árin,“ segir Tryggvi Karl.

Fyrirtæki í fjölbreyttum atvinnugreinum nýta sér þjónustu Verifone og má þar meðal annars nefna aðila í almennum verslunarrekstri, fyrirtæki í ferðaþjónustu, veitingastaði og olíufélög. Verifone starfar þar á meðal í yfir 165 löndum.