Skráð atvinnuleysi í apríl 2008 var 1% eða að meðaltali 1.717 manns, sem eru 43 fleiri en í mars sl. eða rúmlega 2% aukning. Atvinnuleysi er um 8% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,1%.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálstofnunar og má sjá nánar í skýrslu um atvinnuástandið í apríl.

Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu er 0,8% eða sama og í mars þrátt fyrir nokkra fjölgun á skrá.  Á landsbyggðinni minnkar atvinnuleysi og er 1,4% en var 1,5% í mars.

Atvinnuleysi karla er 0,9% eða sama og í mars en þó hefur körlum fjölgað nokkuð á skrá milli mánaða. Atvinnuleysi kvenna er 1,3% líkt og í mars.

Þeim sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði fjölgar nokkuð og voru 538 í lok apríl en 518 í lok mars.  Þetta er þó umtalsverð fækkun frá því sem var 2006 og 2007.  Það voru 269 atvinnulausir  í meira en eitt ár í apríl og hefur fjöldi þeirra lítið breyst síðustu mánuði.

Vísbendingar um atvinnuástandið í maí

Á vef Vinnumálastofnunar segir að yfirleitt dregur úr atvinnuleysi í maí. Í fyrra minnkaði atvinnuleysið um 5,7% milli þessara mánaða og var þá 1,1% í apríl og maí.

Atvinnulausum í lok apríl fækkaði frá lokum mars eða um 34, en fækkun var um 130 á sama tíma árið 2007. Þegar allt er talið er því líklegt að atvinnuleysið í maí 2008 muni lítið breytast og verða á bilinu 1%-1,2%.