Í lok árs 2015 greiddi ríkissjóður 49,9 milljarða króna inn á skuldabréf Seðlabanka Íslands. Er þetta ein stærsta einstaka afborgun af skuldum ríkissjóðs til þessa. Frá þessu er sagt á vef Fjármálaráðuneytisins.

Skuldabréfið, sem upphaflega var gefið út í janúar 2009 til styrkingar eiginfjárstöðu Seðlabankans, er afborgunarbréf og nemur árleg afborgun 5 ma.kr.

Á árinu 2015 greiddi ríkissjóður um 47 milljarða króna til viðbótar árlegri afborgun af bréfinu og nema eftirstöðvar þess í árslok um 90 milljarða króna. Samkvæmt áætlunum stendur til að greiða bréfið upp að fullu á þessu ári.

Á síðastliðnu ári fyrirframgreiddi ríkissjóður um 150 milljarða króna af innlendum og erlendum skuldum. Umræddar fyrirframgreiðslur hafa að öðru óbreyttu um 7 milljarða króna áhrif til lækkunar vaxtagjalda á ári hverju.

Heildarskuldir ríkissjóðs í árslok 2015 eru áætlaðar um 1.349 ma.kr. til samanburðar við 1.492 ma.kr. í árslok 2014, en það samsvarar um 10% lækkun skulda á milli ára. Á árinu 2016 er áætlað að skuldir ríkissjóðs lækki enn frekar og nemi 1.171 ma.kr. í lok ársins.