Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 11% í ágúst miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmum 221 þúsund farþegum árið 2004 í rúma 245 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæpum 9% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um 22%.

Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um rúm 10% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr rúmlega 1.167 þúsund farþegum í rúma 1.286 þúsund farþega.