Þrettán starfsmönnum Símans hefur verið sagt upp. Síminn ætlar að skerpa á áherslum í rekstri með stofnun nýs sviðs, Upplýsingatæknisviðs sem á að einbeita sér að rekstri, þjónustu, vöruþróun og sölu á upplýsingatækni.

Starfsmennirnir eru út um allt. Þeir eru á flestum sviðum fyrirtækisins í Reykjavík en ein staða úti á landi, samkvæmt upplýsingum frá Símanum.