Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 15% í september miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 122 þúsund farþegum árið 2003 í tæp 140 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæplega 15% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um tæp 16%.

Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um tæp 21% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2003, eða úr rúmum 1.084 þúsund farþegum í rúmlega 1.307 þúsund farþega.