Íslandsbanki seldi 1% hlut í Icelandair Group síðla á föstudag og nemur markaðsverð hlutarins 760 milljónum króna. Viðskiptin fóru í gegnum Kauphöll Íslands í dag.

Þetta eru ekki einu viðskiptin sem gerð hafa verið með bréf í Icelandair í dag, því heildarvelta viðskipta nemur um 1,5 milljarði króna.

Gengi hvers hlutar í Icelandair er nú rúmar 15 krónur og heildarmarkaðsvirði fyrirtækisins tæpir 76 milljarðar króna.