HS Veitur, sem annast dreifingu á rafmagni, heitu vatni og köldu vatni, skilaði 949 milljóna króna hagnaði eftir skatta árið 2021 samanborið við 564 milljónir árið áður. Rekstrarhagnaður félagsins jókst úr 1,5 milljarði og nam 2,2 milljörðum króna. Stjórn HS Veitna leggur til að félagið kaupi eigin bréf fyrir 1,8 milljarða króna en á árinu 2021 voru keypt eigin bréf fyrir 500 milljónir. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem birtur var í dag.

Rekstrartekjur HS Veitna á síðast ári námu um 8,1 milljarði króna og jukust um 12% frá árinu 2020. Tekjur af raforkudreifingu og flutningi jukust um 14% og námu 4,2 milljörðum, tekjur af sölu og dreifingar á heitu vatni jukust um 3,7% og námu 2,4 milljörðum og sala og dreifingar á fersku vatni skilaði 676 milljónum.

Stöðugildi voru að meðaltali 97 á árinu 2021 samanborið við 96 árið áður. Laun og launatengd gjöld lækkuðu um 16 milljónir á milli ára og námu 428,5 milljónum króna.

HS Veitur eru í 50,1% eigu Reykjanesbæjar, 49,8% eigur HSV Eignarhaldsfélags og Suðurnesjabær fer með 0,1% hlut. HSV keypti 15% hlut Hafnarfjarðarbæjar árið 2020 fyrir um 3,5 milljarða króna.

HSV Eignarhaldsfélag er að mestu leyti í eigu lífeyrissjóða en auk þess er Ursus, fjárfestingafélag Heiðars Guðjónssonar, forstjóra Sýnar og stjórnarformanns HSV, með tæplega 5% hlut og Miranda, í eigu Berglindar Bjarkar Jónsdóttur, fer með 2% hlut samkvæmt ársreikningi HSV fyrir árið 2020.