Tryggingafélagið VÍS tapaði 1.963 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2020, en til samanburðar hagnaðist félagið um 936 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallar Nasdaq á Íslandi.

Iðgjöld tímabilsins námu 5,6 milljörðum króna og stóðu nánast í stað frá sama tímabili í fyrra. Fjárfestingatekjur voru neikvæðar um 162 milljónir en á sama tíma í fyrra voru þær jákvæðar um 1,2 milljarða króna. Arðsemi eigin fjár var neikvæð um 13,8% en jákvæð um 6,5% á sama tímabili í fyrra. Þá nam tap á hlut 1,04 krónum samanborið við 0,49 krónu hagnað á hlut á sama tímabili árið áður.

„Fyrsti fjórðungur ársins var einn sá versti í sögu félagsins og nam tap tímabilsins 1.963 milljónum kr. Óveður, snjóflóð og alvarleg bílslys settu mark sitt á þessa tjónaþungu mánuði. Matsþróun og styrking tjónaskuldar hafði einnig áhrif á fjórðunginn. Samsett hlutfall fjórðungsins var 125,8%. Vakin er athygli á því að samsetta hlutfallið er nú reiknað samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sem birt voru þann 18. mars 2020, en samkvæmt tilmælunum skal ekki taka tillit til vaxta- og gengisbreytinga í samsettu hlutfalli. Áhrifin eru 8,2% til lækkunar á samsettu hlutfalli í fjórðungnum.

Aðferðafræði við að reikna mat á tjónaskuld var aðlöguð í fjórðungnum þar sem matsbreytingar síðustu ára hafa viðvarandi verið neikvæðar, sér í lagi í líkamstjónum. Vegna þessa hefur félagið styrkt tjónaskuldina samantekið um 700 milljónir króna í fjórðungnum.

Ársfjórðungurinn var erfiður á verðbréfamörkuðum sem skilaði sér í neikvæðum fjárfestingatekjum að fjárhæð 162 m.kr. eða 0,5% neikvæðri ávöxtun fjárfestingaeigna. Lækkun skráðra hlutabréfa hafði þar mest áhrif en auk þess hafði virðislækkun framtakssjóða og erlendra skuldabréfasjóða neikvæð áhrif. Á móti skiluðu fjárfestingar félagsins í óverðtryggðum ríkisskuldabréfum og sértryggðum skuldabréfum jákvæðri afkomu. Þess má geta að eignarhlutur félagsins í ferðaþjónustu beint og óbeint í gegnum sjóði er um 580 m.kr., þar af eign í Bláa lóninu um 470 m.kr.

Mikil óvissa er framundan vegna COVID-19 og erfitt er að meta hversu lengi hún varir. Erfiðar horfur í efnahagslífinu og á vinnumarkaði gera það að verkum að við höfum ákveðið að leggja alla áherslu á að vera til staðar fyrir viðskiptavini okkar, bæði fyrirtæki og einstaklinga. Í því felst t.a.m. að veita viðskiptavinum okkar greiðslufresti og ráðgjöf um tryggingavernd í breyttum aðstæðum. Stærsta verkefni okkar og annarra samfélagslega ábyrgra fyrirtækja er að bregðast við þessum fordæmalausu aðstæðum á ábyrgan hátt því óvissunni í íslensku efnahagslífi er því miður hvergi nærri lokið.

Sú stafræna umbylting sem hefur átt sér stað hjá félaginu á undanförnum tveimur árum gerði það að verkum að við gátum brugðist hratt við breyttu landslagi vegna COVID-19. Við færðum þjónustuna okkar alfarið á netið um miðjan marsmánuð  og langar mig að þakka viðskiptavinum okkar fyrir að bregðast vel við þeirri breytingu. Þeir hafa óhikað nýtt sér stafrænar lausnir félagsins og er nú annað árið í röð nær 100% aukning á innskráningum í þjónustugáttina okkar. Þá var einnig sett met í hlutfalli rafrænna tjónstilkynninga í fjórðungnum en um helmingur allra tjóna eru nú tilkynnt rafrænt.

Ég er stoltur af því að viðskiptavinir okkar hafa nú val um að styrkja góðgerðarfélög þegar þeir kaupa líf- og sjúkdómatryggingar hjá okkur á netinu. Valið stendur milli þriggja góðgerðarfélaga sem eru Kraftur, MS félag Íslands og Hjartaheill. Á skömmum tíma hafa þeir viðskiptavinir okkar sem velja þessa leið við að tryggja líf og heilsu safnað myndarlegri upphæð fyrir þessi góðgerðarfélög.

Þrátt fyrir fordæmalaust ástand í byrjun árs hef ég fulla trú á því að sumarið hafi í för með sér bjartari tíma fyrir okkur og samfélagið í heild,“ er haft eftir Helga Bjarnasyni, forstjóra VÍS, í tilkynningunni.