Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð sem hækkar heildaraflamark í skötusel um 200 tonn og kemur til ráðstöfunar nú í desember.

Umsóknir um úthlutun skulu sem fyrr berast Fiskistofu fyrir 10. desember og er verð á aflaheimildum 120 kr. á hvert kíló sem greitt er áður en úthlutun fer fram.

Heildaraflamark í skötusel fer við þessa breytingu úr 400 tonnum í 600 tonn á yfirstandandi fiskveiðiári.

Á fiskveiðiárinu 2009/2010 voru aflaheimildir seldar til 217 aðila og á yfirstandandi fiskveiðiári hafa 177 aðilar átt viðskipti við Fiskistofu vegna aflaheimilda í skötusel, segir í frétt frá ráðuneytinu.