Á fyrsta ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 4.200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,3% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,5% hjá körlum og 2,2% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 6,5%. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Á fyrsta ársfjórðungi 2007 mældist atvinnuleysi 2,0% og var það sama hjá körlum og konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 6,9%.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar, sem eru ekki í vinnu en eru í námi, flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.