Lögmannsstofan Lögmenn Laugavegi 3 hagnaðist um 41 milljón króna í fyrra samanborið við tæplega 35 milljónir árið 2019. Tekjur jukust úr 123 milljónum í tæplega 131 milljón á milli ára.

Eignir félagsins námu 205 milljónum króna um áramótin síðustu en voru 279 milljónir ári áður. Skuldir lækka úr 242 milljónum í 162 á milli ára og var eiginfjárhlutfallið 21% um áramótin.

Stjórn leggur til að 41 milljón króna verði greidd í arð. Eigendur lögmannsstofunnar eru Lára V. Júlíusdóttir og Hulda R. Rúriksdóttir.