58 tonn af gólfteppum voru flutt inn til landsins í janúar samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er 45% meira en í sama mánuði árið á undan.

Innflutningur gólfteppa hefur almennt aukist undanfarin misseri. Á síðasta ári voru flutt inn 745 tonn af gólfteppum en 546 tonn árið 2014.

Verðmæti þeirra gólfteppa sem voru flutt til landsins í fyrra var 515 milljónir króna, sem þýðir að hvert tonn gólfteppa kostaði að meðaltali um 700 þúsund krónur.