4,517 milljarða velta var á viðskiptum í Kauphöllinni í dag. 694,5 milljóna velta í viðskiptum með hlutabréf á Aðalmarkaði og um 3,8 milljarða velta með skuldabréf.

Mest lækkaði gengi bréfa í Össuri um tæp þrjú prósentustig og í Vodafone eða um 1,16%. Mest hækkuðu bréf í Reginn (1,27%) og í Högum (1,16%).

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,17% og stendur lokagildi hennar í 1.362,79.