Vinnumálastofnun barst 1 tilkynning um hópuppsögn í septembermánuði 2010. Um er að ræða tilkynningu frá fyrirtæki frá fyrirtæki í byggingariðnaði.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar en heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 21 manns. Þeir starfsmenn, sem sagt hefur verið upp, koma til með að missa vinnuna í nóvember og fram í apríl 2011.

Alls hafa borist 22 tilkynningar um hópuppsagnir til Vinnumálastofnunar það sem af er þessu ári, þar sem sagt hefur verið upp samtals 515 manns.