Fyrir skömmu var auglýst laus til umsóknar staða forstöðumanns rekstrarsviðs Byggðastofnunar. Umsóknarfrestur rann út þann 22. ágúst síðast liðinn. Umsækjendur eru 59 talsins, og því ljóst að stofnunin er eftirsóttur vinnustaður eins og segir í frétt á heimasíðu þeirra. Stærstur hluti umsóknanna kemur af höfuðborgarsvæðinu, og því ljóst að margir hafa áhuga á að flytjast í Skagafjörðinn þegar góð störf eru í boði segja þeir Byggðastofnunarmenn.

Nú verður unnið úr umsóknum og vonandi verða línur farnar að skýrast fyrir miðjan september.