Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2009 hækkaði um 0,48% frá fyrra mánuði.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en 12 mánaða verðbólga mælist því nú núna 7,5% og lækkar úr 8,6% frá því í nóvember.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun verðbólgu sl. 5 ár. Þar sést hvernig verðbólgan náði hámarki, 18,6%, í janúar á þessu ári en hefur síðan þá farið nokkuð hratt niður á við ef undan er skilin hækkun í júní. Þá hefur verðbólga nú ekki verið lægri í tæp í tæp tvö ár.

Á vef Hagstofunnar kemur fram að flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 25,5% (vísitöluáhrif 0,20%) og verð á nýjum bílum hækkaði um 4,0% (0,14%).

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,4% sem jafngildir 9,8% verðbólgu á ári.