Skráð atvinnuleysi í maí 2009 var 8,7% eða að meðaltali 14.595 manns og minnkar atvinnuleysi um 1,5% að meðaltali frá apríl eða um 219 manns.

Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.739 manns.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar en tekið er fram að vegna árstíðasveiflu eykst áætlað vinnuafl í 167.789 manns í maí eða um rúm 5.000 sem hefur áhrif á reiknað atvinnuleysishlutfall til lækkunar.

Atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum 14,2% en minnst á Vestfjörðum 2,3%. Þá breytist atvinnuleysi lítið á höfuðborgarsvæðinu en minnkar um 4,6% á landsbyggðinni.

Atvinnulausum 16-24 ára hefur fjölgað úr 3.588 í lok apríl í 3.734 í lok maí og eru þeir um 23% allra atvinnulausra í maí en voru um 21% í lok apríl.

Á vef stofnunarinnar kemur fram að erfitt er að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu,en líklegt er að atvinnuleysið í júní 2009 muni minnka og verða á bilinu 7,9%-8,4%, talsverð aukning er á framboði vinnuafls milli maí og júní, sem nemur um 6.700 manns og hefur áhrif á reiknað atvinnuleysi.

Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.