Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 14. október til og með 20. október 2011 var 93. Þar af voru 79 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.420 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26 milljónir króna, að því er greint er frá á vef Þjóðskrár .

Á Suðurnesjunum var tveimur kaupsamningum þinglýst og var heiltarveltan 55 milljónir króna. Á Akureyri voru samningarnir 7 og meðalupphæð á samning 20,7 milljónir króna. Á Árborgarsvæðinu var 8 kaupsamningum þinglýst, fyrir alls 193 milljónir króna.