Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,4% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 357 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,8% í gær og hefur lækkað jafnt og þétt frá opnun í morgun. Hún hefur að vísu tekið örlítinn kipp upp á við nú rétt undir hádegi en rétt fyrir kl. 11 hafði hún lækkað um 2,5%.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Straumur leiðir lækkanir dagsins og hefur lækkað um 6,2%.

Velta með hlutabréf er um 100 milljónir króna en þar af eru tæpar 46 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir rúmar 35 milljónir króna með bréf í Össur og rúmar 11 milljónir króna með bréf í Marel.