Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,07% og er 8.317 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 12,9 milljónum króna.

Atorka Group hefur hækkað um 2,42%, Icelandair Group hefur hækkað um 0,9%, 365 hefur hækkað um 0,57%, Century Aluminium hefur hækkað um 0,54% og Eimskip hefur hækkað um 0,5%.

Föreya banki hefur lækkað um 0,84%, Flaga Group hefur lækkað um 0,52%, Össur hefur lækkað um 0,47%, Bakkavör Group hefur lækkað um 0,43% og Teymi hefur lækkað um 0,2%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,35% og er 114,3 stig.