Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur lækkað um 1,5% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 870 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 1,5% í gær en hefur þokast niður á við í morgun.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur lækkað um 1,8% og stendur nú í 322 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins eitt félag, Eimskipafélagið hefur hækkað í morgun. Þá leiðir Century Aluminum lækkanir dagsins.

Velta með hlutabréf er lítil eða um 30 milljónir króna en þar af eru rúmar 13 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir tæpar 10 milljónir króna með bréf í Marel og tæpar 4 milljónir króna með bréf í Össur.