Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,5% og er 4.408 stig við hádegi. Gengi krónu hefur veikst um 0,9% og er 157,6 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Á myndinni á vinstri hönd sést helstu hreyfingar á gengi hlutabréfa.

Veltan nemur  1,1 milljarði króna.

Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 0,3%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 0,6% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 1,1%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.