Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur nú lækkað um 0,5% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 4.198 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en þar sést hvar færeysku félögin leiða lækkanir dagsins.

Velta með hlutabréf er tæpar 470 milljónir. Þar af eru um 190 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og tæpar 150 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur styrkst um 0,1% frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 158,4 stig.