Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:10 í 640 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,9% í gær og hélt áframað lækkað strax við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæpar 105 milljónir króna en þar af eru tæpar 63 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir rúmar 25 milljónir króna með bréf í Marel.