Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 640 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,6% í gær en hafði staðið í stað síðustu tvo daga þar á undan.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 32 milljónir krónur en þar af eru tæpar 22 milljónir með bréf í Marel og 9 milljónir króna með bréf í Össur.