Úrvalsvísitalan lækkar um 1,33% og er 6.149,97 stig.

Tvö fyrirtæki hækka það sem af er degi. Það er Dagsbrún og Mosaic Fashions, sem bæði hækka um 0,57%.

Landsbankinn leiðir lækkunina með 3,31% lækkun. Því næst lækkar Íslandsbanki um 1,63%, Atlantic Petroleum lækkar um 1,52%, FL Group lækkar um 1,25% og Straumur-Burðarás lækkar um 1,14%.

Gengi íslensku krónunnar hefur lækkað um 0,14% og er 120,2 stig.