Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,6% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.162 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 3,3% í gær en lækkaði strax við opnun markaða í morgun en hefur nú ekki mikið hreyfst í um klukkustund.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 4,2 milljarðar en þar af eru um 2,3 miljarðar króna með bréf í Glitni en um kl. 11 fóru fram viðskipti fyrir rúma 1,9 milljarða með bréf í félaginu.

Þá er velta fyrir rétt tæpa 1,2 milljarða með bréf í Kaupþing og um 440 milljónir með bréf í Landsbankanum en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan heldur veikst verulega í morgun eða um 2,7% og er gengisvísitalan nú 180,9 stig sem er nýtt met.