Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,35% og er 6.409 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðvakt Mentis. Veltan nemur 2.385 milljónum króna.

Mosaic Fashions hefur hækkað um 5,46% í 46 viðskiptum sem nema samtals um 478 milljónum króna en félagið hefur lækkað um 7,45% það sem af er ári, FL Group hefur hækkað um 1,3%, Kaupþing banki hefur hækkað um 0,83%, Flaga Group hefur hækkað um 0,71% og Straumur-Burðarás hefur hækkað um 0,59%.

Glitnir hefur lækkað um 1,27% og Össur hefur lækkað um 0,42%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,3% það sem af er degi og rekja sérfræðingar það til ákvörðunar Seðlabankans í morgun um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 14%.

Þetta er í fyrsta sinn síðan vaxtahækkunarferill Seðlabankann hófst í maí 2004 að vextir standa í stað á vaxtaákvörðunardegi en Seðlabankinn hefur hækkað vexti sautján sinnum síðan vorið 2004. Á þeim tíma hafa vextir hækkað frá því að vera 5,5% í að vera 14%.