Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 365 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% í gær og hefur lækkað jafnt og þétt frá opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 46 milljónir króna en þar af eru tæpar 42 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir tæpar 3 milljónir króna með bréf í Bakkavör og tæpar milljón krónur með bréf í Össur.