Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,11% og er 5.309,10 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Veltan nemur um 156 milljónum króna.

Össur hefur hækkað um 1,88%, Atlantic Petroleum hefur hækkað um 0,73%, Marel hefur hækkað um 0,65%, Straumur-Burðarás og Bakkavör Group hafa hækkað um 0,63%.

Ekkert félag hefur lækkað það sem af er degi.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,05% og er gengisvísitalan 125,89 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.