Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,3% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.266 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög hafa hækkað það sem af er degi. Aðeins hefur þó dregið úr lækkun Úrvalsvísitölunnar.

Velta með hlutabréf er enn lítil eða aðeins um 230 milljónir. Þar af eru um 140 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], rúmlega 90 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og um  50 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst örlítið frá því í morgun eða 0,1% og er gengisvísitalan nú 159,1 stig.