Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,1% og er 4.136 stig við hádegi. Gengi krónu hefur veikst um 0,9% og er 159,3 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan á hlutabréfamarkaði nemur 531 milljón króna.

Spron hefur lækkað um 1,6% í litlum viðskiptum. Í gær samþykktu hluthafar Spron sameiningu við Kaupþing.

Norska vísitalan OBX hefur hækkað um 1,9% og sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 0,3%. Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 0,5%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.