Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,46% við hádegi og er 5.735,59 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Tryggingamiðstöðin hefur hækkað um 2,50%, Atlantic Petroleum hefur hækkað um 0,97%, Landsbankinn hefur hækkað um 0,91%, Atorka Group hefur hækkað um 0,87% og Dagsbrún hefur hækkað um 0,83%.

Ekkert félag hefur lækkað það sem af er degi.

Gengi krónunnar hefur veikst um 0,73% og er skráð 127,7 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.