Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,58% og er 6.466 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 6.381 milljón króna.

Eimskip hafa hækkað um 3,48%, FL Group hefur hækkað um 1,65%, Exista hefur hækkað um 1,36%, Kaupþing banki hefur hækkað um 1,31% og Actavis hefur hækkað um 1,23%.

Mosaic hefur lækkað um 0,62%, Atorka Group hefur lækkað um 0,46% og Tryggingamiðstöðin hefur lækkað um 0,27%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,70% og er 125,2 stig við lok dags.