Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur nú lækkað um 0,42% eftir að hafa hækkað um 1,1% fyrr í morgun og stendur nú í 5.194 stigum.

Aðeins tvö félög hafa hækkað, Glitnir [ GLB ] hefur hækkað um 1,5% og Eik Banki [ FO-EIK ] um 0,6%.

Bakkavör [ BAKK ] hefur lækkað mesta félaga eða um 4,4%. Þá hefur Exista [ EXISTA ] lækkað um 2,8% og Atlantic Patriolium [ FO-ATLA ]um 1,75%.

Velta með hlutabréf er nú um 2,7 milljarðar. Þar af eru 720 milljónir með bréf í Glitni og 570 milljónir með bréf í Exista.