Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,20% og er 5.332 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakinni.

Kaupþing banki hefur hækkað um 0,97% og Atlantic Petroleum hefur hækkað um 0,54%.

Straumur-Burðarás hefur lækkað um 1,79%, Glitnir hefur lækkað um 1,18%, Landsbankinn hefur lækkað um 1%, Actavis Group hefur lækkað um 0,79% og Bakkavör Group um 0,68%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,17% og er gengisvísitalan 132,7 stig.