Aðalfundur Icelandic Group [ IG ] samþykkti að félagið tæki víkjandi lán með breytirétti í hlutafé. Láninu verður varið til að styrkja innviði félagsins og að lækka hlutfall skammtímalána.

Áður en þessi lántaka var samþykkt sagði Magnús Þorsteinsson, fráfarandi formaður Icelandic Group: "Það er mjög mikilvægt að félagið nái að koma þessari nýju fjármögnun á, félagið þarf hennar við til áframhaldandi rekstrar og viðgangi þess."

Lánið ber fasta 23% ársvexti. Fjárhæð þess verður, sem samsvarar í íslenskum krónum 41 milljón evra.