Aart Schalk hefur verið ráðinn IT Business Partner hjá Marel, en þetta kemur fram í tilkynningu.

Undanfarin fimm ár hefur Aart verið sölu- og markaðsstjóri hjá Tölvumiðlun en vann fyrir það hjá Annata, Outcome hugbúnaði og ParX (nú PWC) ásamt því að koma að stofnun og rekstri ymissa fyrirtækja.

Aart, sem er hollenskur, hefur lokið meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræðum frá Háskóla Íslands og BA gráðu í viðskiptafræðum frá Arnhem Business School í Hollandi.