Actavis hefur sett fyrstu lyfin á markað á Ítalíu undir eigin vörumerki. Actavis hefur byggt upp starfsemina á Ítalíu frá grunni, en félagið opnaði fyrr á árinu skrifstofu í Saronno, skammt frá Mílanó og Malpensa flugvellinum. Ítalski markaðurinn er sá fjórði stærsti sem Actavis starfar á í Evrópu, en Ítalir telja rúmar 58 milljónir, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Actavis á Ítalíu hefur þegar markaðssett um 20 lyf, og eru 200 verkefni í þróun og skráningu. Fyrsta lyf Actavis á Ítalíu var sýklalyfið Amoxicillin.   Medis, það sölusvið innan Actavis sem sér um sölu til þriðja aðila, hefur starfað á Ítalíu síðan 2004. Medis selur lyf til annarra lyfjafyrirtækja sem síðan markaðssetja þau undir eigin merkjum. Medis selur í dag 13 lyf inn á Ítalíumarkað og fer þeim fjölgandi. Þannig er til dæmis gert ráð fyrir að hefja sölu hjartalyfjanna Ramipril og Ramipril HCT á Ítalíu fyrir lok árs, þegar einkaleyfi á þeim rennur út.

Í tilkynningunni er haft eftir Róbert Wessman forstjóra Actavis: "Það er sem fyrr stefna okkar hjá Actavis að ná góðri stöðu á lykilmörkuðum. Ítalski samheitalyfjamarkaðurinn fer stækkandi, ekki síst sala samheitalyfja sem seld eru undir vörumerki. Vöxturinn hefur verið mældur í tveggja stafa tölum á undanförnum árum. Við gerum ráð fyrir að setja á markað meira en 70 lyf á Ítalíu á næsta ári."