Actavis hefur selt Norgesplaster, verksmiðju í Vennesla í Noregi sem framleiðir plástra og íþróttateip. Kaupendurnir eru norskir fjárfestar og þar á meðal framkvæmdastjóri félagsins. Kaupverðið er ekki gefið upp segir í tilkynningu.

Actavis eignaðist Norgesplaster með kaupunum á samheitalyfjasviði Alpharma í desember 2005. Sala verksmiðjunnar er liður í áframhaldandi samþættingu á starfsemi Actavis Group, en félagið einbeitir sér að kjarnastarfsemi sem tengist framleiðslu og sölu samheitalyfja. Starfsemi sölu- og markaðssviðs Actavis í Osló verður óbreytt segir í tilkynningu frá félaginu.

Núverandi starfsmenn Norgesplaster, 36 manns, munu áfram starfa hjá verksmiðjunni.