Actavis Group hefur undirritað viljayfirlýsingu um sölu á dótturfélagi sínu í Búlgaríu, Balkanpharma Razgrad AD. Viljayfirlýsingin var gerð við búlgarska lyfjafyrirtækið Biovet AD Peshtera og um er að ræða framleiðslu á virkum lyfjaefnum (API), að stærstum hluta fyrir dýralyf. Fjárhagsupplýsingar varðandi fyrirhugaða sölu á verksmiðjunni eru ekki gefnar upp en búast má við að salan hafi óveruleg áhrif á starfsemi og rekstrarniðurstöðu Actavis á árinu 2005. Fyrirhuguð sala er með fyrirvara um áreiðanleikakönnun.

Sala verksmiðjunnar er í samræmi við yfirlýsta stefnu félagsins um að selja einingar sem ekki falla að kjarnastarfsemi félagsins segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.