Adolf Ingi Erlingsson, íþróttafréttamaðurinn þjóðkunni, hefur stofnað einkahlutafélagið Radio Iceland FM. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu.

Adolf segir að verkefnið sé á frumstigi og kýs að tjá sig ekki um hvað sé í vændum á þessu stigi málsins. Hann segir þó að gangi fyrirætlanir hans eftir muni draga til tíðinda á íslenskum útvarpsmarkaði á næstu misserum.

Adolf Inga var sagt upp störfum hjá Ríkisútvarpinu seint í nóvember á seinasta ári eftir að hafa starfað á íþróttadeild frá því um haustið 1992.