Heimkaup hóf í dag að dreifa bjór, léttvíni og öðru áfengi í heimsendingu. Viðskiptavinir Heimkaups geta nú pantað áfengi og fengið sent heim samdægurs, að því er kemur fram í tilkynningu.

„Þetta eru tímamót að mörgu leyti og ánægjulegt að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á þessa eðlilegu og sjálfsögðu þjónustu fram á kvöld á virkum dögum og báða helgardagana að auki. Það er löngu tímabært að bjóða upp á úrval af bjór og léttum vínum í vefverslun okkar og ég er viss um að viðtökurnar verða góðar,“ segir Pálmi Jónsson, forstjóri Heimkaupa.

Það er danska fyrirtækið Heimkaup ApS sem selur áfengið en Heimkaup, dótturfélag Wedo, dreifir vörunni. Fyrst um sinn verður hægt að versla og fá sent áfengi frá innlendum birgjum.

„Við erum með strangt eftirlit hvað þessa áfengissölu varðar. Viðskiptavinur þarf að samþykkja söluna með rafrænum skilríkjum og aðeins aðilar sem geta sýnt fram á löglegan aldur með skilríkjum fá hana afhenta,“ segir Pálmi.