Sala áfengis fyrstu 11 mánuði ársins er 1,8% minni í magni en árið 2008.

Þetta kemur fram á vef Vínbúðarinnar en þar kemur einnig fram að á árinu hefur  sala á rauðvíni dregist saman um 4,5% á milli ára en sala á hvítvíni aukist um 3,8% á milli ára.

Sala á sterku áfengi þ.e. ókrydduðu brennivíni og vodka hefur dregist saman 11,5% í magni.  Enn meiri samdráttur hefur orðið í sölu blandaðra sterkra drykkja eða 37%.

Salan í nóvember dróst saman um 4,1% samanborið við nóvember í fyrra.  Þar vegur þungt minni sala á lagerbjór og sterkum drykkjum.

Sjá nánar á vef Vínbúðarinnar.