Síðustu viðskipti með íslenskar krónur á aflandsmarkaði fóru fram á genginu 225, það er fyrir hverja evru voru greiddar 225 íslenskar krónur.

Þetta kemur fram í Hagsjá, vefriti hagfræðideildar Landsbankans í dag en eins og áður hefur verið fjallað um í Hagsjá hélst gengi krónunnar fremur stöðugt í sumar, eða frá júní fram í miðjan september. Þá styrkist krónan umtalsvert og fór verð evru á aflandsmarkaði lægst niður í 190 krónur. Frá byrjun októbermánaðar hefur krónan veikst nokkuð.

Hagfræðideildin segir viðskipti á aflandsmarkaði vera mjög rýr og oft og iðulega líði margir dagar milli viðskipta með evrur á móti krónum. Þannig hafi frá nýliðnu sumri þeim dögum fækkað sem ekki hefur verið lagt fram annað hvort kaup- eða sölutilboð. Breytingar á genginu hafa í kjölfarið orðið minni og sömuleiðis hefur verðbilið dregist saman.

Hagfræðideildin segir gengismun á milli hins opinbera gengis annars vegar og hins vegar aflandsgengis vera einn af þeim þáttum sem peningastefnunefnd Seðlabankans fylgist náið með.

„Eftir því sem munurinn eykst, þeim mun meiri er ávinningurinn á að fara á svig við gjaldeyrishöft og þar með líkurnar á að slíkt sé gert,“ segir í Hagsjá.

„Þegar viðskipti fara fram á aflandsmarkaði skilar gjaldeyrir sér ekki til landsins og þar með er minni þrýstingur til styrkingar krónunnar, sem aftur heldur aftur af vaxtalækkunum Seðlabankans. Því má segja að slík viðskipti séu afar óhagstæð fyrir allan almenning og fyrirtæki í landinu, fyrir utan þá fáu sem hagnast af þeim.“