Makríllinn frystur um borð í Guðmundi VE. (Mynd: Þorbjörn Víglundsson).
Makríllinn frystur um borð í Guðmundi VE. (Mynd: Þorbjörn Víglundsson).
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Afli íslenskra skipa árið 2010 var rúm 1.063 þúsund tonn, 66 þúsund tonnum minni en árið 2009. Aflaverðmæti nam tæpum 133 milljörðum króna og jókst um 15,2% frá fyrra ári, eða um 11% ef mælt er á föstu verði. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, mest uppsjávarafli sem landað var þar. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða 45%. Af þorskaflanum fór mest í landfrystingu og einnig stærsti hluti ýsuaflans. Þetta kemur fram í ritinu Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2010 sem birtist á vef Hagstofu Íslands.